Nokkrir leikmenn Tindastóls valdnir í æfingahópa yngri landsliða KKÍ

Á Facebook-síðu Unglingaráðs Körfuknattleiksdeildar Tindastóls segir að eftirtaldir leikmenn Tindastóls hafa verið valdnir í æfingahópa yngri landsliða KKÍ. Um er að ræða leikmenn liða U15, U16, U18 drengja og stúlkna auk U20 karla og kvenna.
 

Þar hafa verið valdir stórir æfingahópar sem koma saman og æfa í desember í fyrstu æfingahópum hvers liðs og svo verða hópar minnkaðir í kjölfarið á nýju ári fyrir framahaldið í febrúar og næsta vor.

Körfuknattleiksdeild Tindastóls ásamt Feyki óskar leikmönnum til hamingju með að vera valin í þennan hóp og óskar þeim góðs gengis.

U15 drengja
Bjartmar Þórðarson
Hallur Atli Helgason
Kjartan Arnarsson
 
U15 stúlkna
Dagbjört Sísí Einarsdóttir
Ylfa Marie Broddadóttir
Margrét Rún Viðarsdóttir
Ragnheiður Anna Steinsdóttir
 
U18 drengja
Axel Arnarsson
 
U18 stúlkna
Brynja Líf Júlíusdóttir
 
U20 kvenna
Rannveig Guðmundsdóttir
 
U20 karla
Orri Már Svavarsson
Veigar Örn Svavarsson
 
Áfram Tindastóll!

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir