Sameiginlegt lið UMSS/KFA í Bikarkeppni FRÍ.

Hópurinn sem tók þátt á mótinu. Mynd: KFA
Hópurinn sem tók þátt á mótinu. Mynd: KFA

53. Bikarkeppni FRÍ í frjálsíþróttum utanhúss fór fram á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði laugardaginn 27. júlí í umsjón FH.

Að þessu sinni stóð Ungmennasamband Skagafjarðar (UMSS) að sameiginlegu liði með Kraftlyftingafélagi Akureyrar (KFA). Önnur lið sem kepptu voru: Breiðablik, FH-A, FH-B, FJÖELDING (Fjölnir/Afturelding), HSK, ÍR-A og ÍR-B. Á síðasta ári sigraði ÍR-A í samanlagðri stigakeppni og í stigakeppni karla, en FH-A sigraði í stigakeppni kvenna.

Úrslit í Bikarkeppni FRÍ 2019: 

Heildarstigakeppni: 1. FH-A 135 stig, 2. ÍR-A 118, 3. Breiðablik 86, 4. UMSS/KFA 77, 5. ÍR-B 64, 6. Fjölnir/Afturelding 58, 7. FH-B 51, 8. HSK 49 stig.
FH-A sigraði einnig bæði í karla- og kvennaflokkum. Aðeins 3 lið unnu til gullverðlauna í einstökum greinum: FH-A í 10 greinum, ÍR-A í 6 greinum og UMSS/KFA í 2 greinum.

Ísak Óli Traustason sigraði í 110m grindahlaupi á 14,90sek (v:-0,5), Pm - átti fyrir 14,92sek. Jóhann Björn Sigurbjörnsson sigraði í 100m hlaupi á 10,72sek (v:-0,4). Þá unnu félagarnir úr KFA einnig til verðlauna: Glódís Edda Þuríðardóttir vann silfur í 100m grind. og brons í 400m hlaupi, og Arnar Valur Vignisson brons í 400m.

Sveitir UMSS/KFA unnu báðar til verðlauna í 1000m boðhlaupum, silfur í karlaflokki og brons í kvennaflokki.

HÉR má sjá upplýsingar um Bikarkeppni FRÍ 2019.

Til hamingju með góðan árangur UMSS / KFA !

/Ungmennafélagið Tindastóll

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir