Siggi Donna kemur í stað Gauja

Sigurður Halldórsson, Siggi Donna. Mynd af Facebook.
Sigurður Halldórsson, Siggi Donna. Mynd af Facebook.

Guðjón Örn Jóhannsson hefur ákveðið að segja skilið við þjálfun meistaraflokks karla og hefur nú þegar hætt störfum. Guðjón var samningslaus við félagið og hefur því engar kvaðir gegn því. Það skal tekið fram að þetta er gert í samkomulagi milli Guðjóns og stjórnar og er alfarið hans ákvörðun. Bjarki Már Árnason mun áfram sinna þjálfun mfl. kk. honum til aðstoðar verður reynsluboltinn Sigurður Halldórsson – Siggi Donna.

Stjórnin vill þakka Guðjóni fyrir hans framlag og starf í þágu félagsins á undanförnum árum og óskar honum alls hins besta.

Fréttatilkynning frá stjórn knattspyrnudeildar Tindastóls.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir