Tindastóll mætir toppliðinu FH í kvöld

Áfram Tindastóll
Áfram Tindastóll

Í kvöld fer fram leikur FH og Tindastóls í Inkasso deild kvenna. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður spilað á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.

Tindastóll er í þriðja sæti í deildinni með 18. stig og er sjö stigum á eftir FH sem er í því efsta. Í síðasta leik voru stelpurnar óheppnar að ná ekki í stig á móti hinu Hafnarfjarðar liðinu Haukum hér heima. Í síðasta leik á móti FH 19.maí vann FH lið Tindastóls í miklum markaleik 4-6, spurning hvort það sama verði upp á teningnum í kvöld.

Feykir hvetur alla til þess að renna suður og styðja við bakið á stelpunum.

/EÍG      

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir