Tindastóll tekur á móti Víði Garði

Heimaleikur í kvöld.
Heimaleikur í kvöld.

Í kvöld fer fram leikur Tindastóls og Víðis í 2. deild karla í knattspyrnu. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og verður leikurinn spilaður á Sauðárkróksvelli.

Tindastóll er í neðsta sæti í deildinni með sex stig og er tíu stigum frá öruggu sæti í deildinni. Víðir er í sjötta sæti í deildinni með 19 stig. Í síðasta leik áttu Tindastóll að vinna en Fjarðabyggð náði að jafna úr aukaspyrnu. Þessi leikur er virkilega mikilvægur fyrir Tindastól ef þeir ætla að halda sér í deildinni og verður spennandi að sjá hvernig þeir mæta til leiks í kvöld.

Feykir hvetur alla stuðningsmenn Tindastóls að mæta á leikinn í kvöld og styðja við bakið á drengjunum.

/EÍG

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir