Ungir körfuboltaleikmenn skrifa undir samning
Stjórn körfuknattleiksdeildar Tindastól heldur áfram að endurnýja samninga og gera nýja. Nú var verið að undirrita samninga við þá Örvar Freyr Harðarson og Eyþór Lár Bárðason sem og tvíburana Orri Má og Veigar Örn Svavarssyni.
Einnig var gerður samningur við Friðrik Hrafn Jóhannsson um að koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla og mun hann einnig sjá um þjálfun á B-liði Tindastóls karla. Friðrik var liðsstjóri meistaraflokks karla á síðustu leiktíð.
/SMH