Unglingalandsmótið hefst í dag!

Mynd: UMFI
Mynd: UMFI

Klukkan 17:00 í dag fer fyrsta grein Unglingalandsmóts UMFÍ 2023 á Sauðárkróki af stað þegar að keppt verður í golfi á Hlíðarendavelli.

Í kvöld klukkan 20:00 fer fram Skemmtiskokk í Skógarhlíð sem er fyrir alla, unga sem aldna og þarf ekki að skrá sig í það.

Fyrstu tónleikar mótsins hefjast síðan í kvöld klukkan 21:00 í skemmtitjaldinu þegar að DJ Heisi þeytir skífum.

Dagskráin um helgina er þétt, skemmtileg og fjölbreytt og það er víst að allir munu finna eitthvað við sitt hæfi. 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir