„Við verðum að horfa fram á veginn“

Israel Martin fer yfir málin með leikmönnum sínum. MYND: HJALTI ÁRNA
Israel Martin fer yfir málin með leikmönnum sínum. MYND: HJALTI ÁRNA

Það er óhætt að fullyrða að stuðningsmenn og leikmenn Tindastóls hafi orðið fyrir sárum vonbrigðum þegar liðið tapaði oddaleiknum gegn Þór Þorlákshöfn í átta liða úrslitum Dominos-deildarinnar nú á dögunum. Þrettán stigum undir þegar fjórar mínútur voru eftir af fimmta leik liðanna tókst Þórsurum það sem átti eiginlega ekki að vera hægt; að snúa leiknum á hvolf og vinna sigur í leik sem var ekkert annað en fáránlegur. 

Væntingar til Tindastólsliðsins voru miklar fyrir tímabilið enda liðið klárlega eitt af tveimur sterkustu liðum landsins þegar leikar hófust í haust. Önnur lið áttu eftir að styrkja sína hópa töluvert eftir því sem leið á tímabilið en lið Tindastóls virtist ekkert mega misstíga sig, þá voru spekingar mættir með kylfuna á lofti á meðan önnur lið virtust sleppa betur undan gagnrýninni. 

Lið Tindastóls var að sjálfsögðu gírað í átt að Íslandsmeistaratitli í vetur en því miður, eins og oft vill gerast, þá gekk ekki allt upp og Stólarnir féllu óvænt úr leik í átta liða úrslitum gegn Þórsurum, 2-3, eftir að hafa náð 2-0 forystu í einvíginu. Feykir lagði nokkrar spurningar fyrir Israel Martin, þjálfara Tindastóls, og spurði hann út í veturinn og komandi keppnistímabil en Martin er nú hálfnaður með tveggja ára samning sinn við Stólana.

Sæll Martin og takk fyrir æsilegan körfuboltavetur. Við erum sennilega öll frekar vonsvikin eftir að hafa tapað fyrir Þór í þessum furðuleik. Hver er þín tilfinning varðandi rimmuna gegn Þórsurum?„Ég er mjög vonsvikinn yfir því hvernig við náðum að tapa síðasta leiknum og það er enn að skjótast um í kollinum á mér að við hefðum getað gert betur. Rimman gegn Þór var mjög líkamlega erfið og tók mikið á og ég held að það hafi verið það lykillinn að sigri Þórs í leikjum fjögur og fimm. Í lokin voru það smáatriði sem gerðu gæfumuninn.“

Þetta var sannkölluð rússíbanareið í vetur. Með hvað ertu ánægður og hvað olli þér vonbrigðum?„Ég er fyrst og fremst ánægður að vera partur af körfuboltafjölskyldunni sem Tindastóll er, sérstaklega þegar maður lítur til baka og sér að klúbburinn er orðinn það sterkur að við unnum bikar í fyrra. Ég er þakklátur fyrir að vera hluti af þessum vexti félagsins. Það voru hins vegar vonbrigði að hafa ekki náð að komast í næstu umferð úrslitakeppninnar að þessu sinni.“

Varstu ánægður með undirbúning liðsins fyrir tímabilið?„Já, að sjálfsögðu. Það var frábær hugmynd að fara með liðið til Spánar og gefa leikmönnum færi á að kynnast fljótt og ná strax fókus í æfingaferlinu.“

Nú voru Stólarnir með besta liðið í Dominos-deildinni fyrir jól. Hvað var það að þínu mati sem gerðist í byrjun árs sem varð til þess að liðið fór af sporinu?„Í fyrsta lagi þá var það slæmt hversu lengi Urald King var í burtu frá liðinu og meiddist síðan um leið og hann kom til baka. Í öðru lagi þá var það besta lausnin að kalla aftur á PJ Alawoya á þessum tíma en þar sem PJ og Urald eru gjörólíkir leikmenn þá kölluðu mannaskiptin á breytingar á bæði varnar- og sóknarleik liðsins.“

Hvað kom þér mest á óvart í Dominos-deildinni í vetur?„Gæði deildarinnar eru meiri og deildin sterkari en áður. Og þá er meiri hæð í deildinni en á fyrri tímabilum.“

Hver var munurinn á Tindastólsliði þessa tímabils og tímabilsins á undan þegar við unnum Maltbikarinn?„Tímabilið á undan þá var hreinlega allt fullkomið – það allra besta. Lykileinkenni liðsins var bara að hafa gaman að því að spila körfubolta. „Já! Þetta er tímabilið!“ – Þannig leið mér síðasta vetur. Þetta tímabil hefur verið allt öðruvísi.“

Ertu farinn að undirbúa þig fyrir næsta tímabil og hverjar eru framtíðarhorfurnar hjá liði Tindastóls?„Já, ég er þegar hafinn handa. Við verðum að horfa fram á veginn. Okkur var kennd mikil lexía á liðnu tímabili og það þýðir bara að við munum gera betur næsta vetur.“

Að lokum, hverjir verða Íslandsmeistarar í vor?„Úrslitin enda 3-2 fyrir Stjörnuna.“ sagði Martin en vildi ekki gefa upp hverjir yrðu andstæðingar Garðbæinga í úrslitarimmunni.

- - - - - -

Viðtalið er vikugamalt og birtist í prentútgáfu Feykis þann 10. apríl sl.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir