Fyrsta messa í Hofskirkju eftir endurbætur
Hofskirkja á Höfðaströnd var bændakirkja til 1915. Hún er orðin það aftur og er eigandi hennar Lilja Sigurlína Pálmadóttir á Hofi. Hofsókn og Hofsóssókn sameinuðust 2023 með Hofsóskirkju sem sóknarkirkju. Hofskirkja lagðist því af og eignaðist Lilja hana. Kirkjan var orðin verulega illa farin og þurfti miklar viðgerðir ætti hún að standa áfram.
Skráðu þig inn til að lesa
Þú getur valið um þrjár áskriftarleiðir:
Leið 1 (blað og rafrænn aðgangur)
Færð blaðið inn um lúguna í hverri viku, rafrænan aðgang að pdf útgáfunni og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 3.495 kr. á mánuði m/vsk (3.149 án/vsk)
Það eru alltaf fjögur blöð í mánaðaráskriftinni.
Leið 2 (rafrænn aðgangur að pdf útgáfu blaðsins)
Færð rafrænan aðgang að pdf útgáfunni að Feyki og að læstum fréttum inn á feykir.is.
Kostar 2.495 kr. á mánuði m/vsk. (2.248 kr. án/vsk).
Leið 3 (rafrænn aðgangur í viku)
Færð rafrænan aðgang að nýjasta tbl. Feykis og læstum fréttum í viku inn á feykir.is.
Kostar 695 kr. vikan m/vsk. (626 kr. án/vsk).
Fleiri fréttir
-
LANDBÚNAÐARMÁL ERU ÖRYGGISMÁL OG TIL UMRÆÐU Í KAKALASKÁLA
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 01.04.2026 kl. 09.00 gunnhildur@feykir.isFyrir fáeinum árum fór fram mikil umræða í landinu um innflutning á hráu kjöti og voru þá margir landsmenn gagnrýnir á að íslensk stjórnvöld nýttu sér ekki ákvæði EES samningsins um heimildir til undanþágu frá innflutningi á hrávöru sem þó væri að finna í þeim samningi. Kunnur er ásetningur Evrópusambandsins að hafa eins litlar undanþágur og takmarkanir og kostur er á verslun með matvæli og á hið sama við um flutning á lifandi dýrum. Íslendingar hafa sem betur fer ekki undirgengist þennan strangtrúnað óheftrar markaðshyggju að fullu þótt þegar hafi þeir gengið of langt að mínu mati og þyrfti að kanna að hvaða marki mætti endurvekja vannýttar heimildir EES samningsins. Í aðlögunarferlinu framundan - leyfum við það á annað borð - verður hins vegar án efa þrýst á um frekari aðlögun í anda óheftra viðskipta á þessu sviði í samræmi við regluverk ESB. Þetta liggur nánast í augum uppi.Meira -
Leitin að Norðansprotanum í fullum gangi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 01.04.2026 kl. 08.00 oli@feykir.isNorðansprotinn er nýsköpunarkeppni þar sem leitað er að áhugaverðustu nýsköpunarhugmynd Norðurlands. Leitin er hafin og stendur til 22. apríl þegar Norðansprotinn 2026 verður valinn á lokaviðburði sem haldinn verður í Drift EA á Akureyri.Meira -
Vísnaþáttur Feykis er afmælisbarn dagsins
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 01.04.2026 kl. 08.00 gunnhildur@feykir.isÍ dag 1. apríl er ansi merkilegur dagur í sögu Feykis, því á þessum degi fyrir 39 árum síðan birtist fyrsti vísnaþátturinn í fréttablaði Feykis. Maðurinn sem á allan heiður að þættinum þarf ekki að kynna fyrir lesendum Feykis, því Guðmundur okkar Valtýsson bóndi á Eiríksstöðum í Svartárdal hefur séð um þáttinn í þessi 39 ár sem hann hefur verið í blaðinu og ekki misst úr þátt. Þættirnir eru orðnir 900 talsins og verður það að teljast þrekvirki og afrek.Meira -
Þvílíka íþróttaveislan framundan um páskahelgina
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 31.03.2026 kl. 14.24 oli@feykir.isÞað verður íþróttaveisla hér norðan heiða um páskahelgina. Við getum byrjað á að óska þess að skíðasvæðið í Tindastólnum verði opið skíðavinum og ekki annað að sjá en að góðar líkur séu á því miðað við veðurspána. Síðan eru fjórir stórleikir í boltanum og það eru engar ýkjur því í körfunni verða bæði stelpurnar á strákarnir á ferðinni í úrslitakeppninni og þá verða tveir leikir í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins spilaðir á Króknum.Meira -
Hinrik Már mætir til leiks á Feyki
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 31.03.2026 kl. 13.00 oli@feykir.isNýr blaðamaður hefur störf hjá Feyki á morgun, eða á sjálfan 1. apríl, en það er Hinrik Már Jónsson frá Syðstu-Grund í Blönduhlíð sem tekur við af hinni eldhressu Gunnhildi Gísladóttur frá Álftagerði sem hefur nú lagt Feykistölvuna frá sér.Meira
