Tónleikar í Bjarmanesi
Laugardagskvöldið 12. október nk. verða tónleikar haldnir í samtarfi við Minningarsjóðinn um hjónin frá Vindhæli og Garði í Bjarmanesi á Skagaströnd. Það er hinn eini sanni Magnús Þór sem mætir á Skagaströnd með gítarinn.
Miðaverð er 3500 kr. og forsala hjá Evu: 6959168/ Erlu: 8691131.
Húsið opnar klukkan 20:00
AHT. enginn posi á staðnum.
Fleiri fréttir
-
Eldur í hesthúsahverfinu á Sauðárkróki
Eldur kom upp í dráttarvél í hesthúsahverfinu á Sauðárkrókur í síðdegis í gær. Samkvæmt upplýsingum frá Svavari slökkviliðisstjóra hjá Brunavörnum Skagafjarðar kviknaði eldurinn í dráttarvél sem haugsuga var tengd við.Meira -
Gul veðurviðvörun í kvöld og nótt
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 23.03.2026 kl. 09.35 oli@feykir.isÞeir sem enn notast við útvarp hafa örugglega heyrt talað um slæma veðurspá fyrir mestallt landið eftir hádegi í dag og reiknað með lokuðum heiðum víða. Svo virðist sem Norðvesturlandið sleppi nokkuð vel framan af degi en það bætir talsvert í vind undir kvöld. Í gulri veðurviðvörun fyrir Strandi og Norðurland vestra segir að gert sé ráð fyrir norðaustan 15-23 m/s og snjókomu og skafrenningi með slæmu skyggni. Búast má við versnandi færð, einkum á fjallvegum.Meira -
„Það gekk vel en of hægt fyrir óþolinmóða unga dömu“
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni, Handverk 22.03.2026 kl. 09.26 klara@nyprent.isJúlíana Alda Óskarsdóttir, fædd árið 1988 í Keflavík en uppalin á Sauðárkróki. Júlíana býr ásamt börnunum sínum fjórum, eiginmanni og hundi á Sauðárkróki og vill hvergi annars staðar vera. Hún vinnur sem umsjónarkennari í Árskóla og líkar það mjög vel.Meira -
Stólarnir sendu lið Álftaness í sumarfrí í fjörugum leik
Fresta þurfti leik Tindastóls og Álftaness á föstudaginn þar sem gestir og dómarar komust ekki norður sökum ófærðar. Leikurinn fór því fram seinni partinn í gær og var hinn fjörugasti. Álftesingar mættu sprækir til leiks enda urðu þeir að vinna leikinn til að eiga möguleika á sæti í úrslitakeppninna. Lærisveinar Hjalta Þórs Vilhjálmssonar leiddu lungann úr leiknum en á lokakaflanum reyndust heimamenn svalari, gestirnir fóru að gera slæm mistök og Stólarnir hirtu stigin tvö og halda því í annað sæti deildarinnar. Lokatölur 115-104.Meira -
Fjallabyggð vill að Alþingi tryggi framgang samgönguáætlunar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 22.03.2026 kl. 01.14 oli@feykir.isSem betur fer hefur veðráttan verið okkur hliðholl í vetur og sjaldan gert stór veður. Engu að síður hefur Siglufjarðarvegur lokast nokkuð oft vegna snjóflóða og snjóflóðahættu. Nú síðustu vikur hefur veðrið þó minnt rækilega á sig og snjóflóð fallið bæði við Strákagöng og í Ólafsjarðarmúla sem hefur jafnvel gert það að verkum að íbúar Siglufjarðar og Ólafsfjarðar hafa verið innilokaðir. Af þessum sökum hefur sveitarstjórn Fjallabyggðar sent frá sér ályktun sem var send þingmönnum Norðausturkjördæmis, þingmönnum Norðvesturkjördæmis, Innviðaráðherra og ráðuneytum oddvita ríkisstjórnarflokka á Alþingi og þeir beðnir að tryggja framgang fyrirliggjandi samgönguáætlunar á Alþingi.Meira
