Folaldavöðvi með sveppum, ananas og tómatsalati og desert í eftirrétt

Matgæðingarnir Lárus og Páley Sonja. Aðsend mynd.
Matgæðingarnir Lárus og Páley Sonja. Aðsend mynd.

Það voru þau Páley Sonja Wiium Ragnarsdóttir og Lárus Blöndal Benediktsson á Blönduósi sem leyfðu okkur að hnýsast í uppskriftabankann þeirra í 29. tbl. Feykis árið 2017. Þau eiga þrjú börn, þau Kristjönu Diljá, Einar Gísla og Margréti Ruth. Hjónin eru bæði sjúkaliðar að mennt en Lárus er nú í slátraranámi og vinnur í SAH samhliða því. Páley hefur starfað sem leiðbeinandi í Blönduskóla og nemur jafnframt kennslufræði við HÍ. „Við kjósum að hafa eldamennskuna þægilega, en jafnframt skemmtilega, og deilum því með lesendum þessum einföldu og góðu uppskriftum, að okkar mati allavega,” segja þau. „Við erum hvorki forrétta- né eftirréttafólk en við leyfum samt einum eftirrétti að fylgja með sem við fáum á hátíðisstundum.”

AÐALRÉTTUR
Grillaður folaldavöðvi m/tómatsalati, fylltum sveppum og grilluðum ananas

Lögur fyrir folald (eða reyndar hvaða kjöt sem er):     
1 flaska af Piri piri kryddolíu frá Pottagöldrum
1 flaska af Bbq sósu - honey mustard 
slatti af Bbq spices allround krydd frá Santa Maria
slatti af Maldon sjávarsalti

Aðferð:
Þessu er öllu blandað saman í skál, kjötið skorið niður í u.þ.b. 2 cm sneiðar og látið ofan í löginn og inn í kæli. Nóg er að láta liggja í leginum í klukkutíma áður en sett er á grillið en það verður þó alltaf betra eftir því sem það geymist í fleiri tíma.

Tómatsalat  (gott sem meðlæti með öllum mat, kjöti og fisk):
250 ml majónes
½ dós sýrður rjómi
u.þ.b. 5 tómatar
½ blaðlaukur
½ dós sweet mango chutney
slatti af karrý

Aðferð:
Tómatarnir skornir í smáa bita og einnig blaðlaukurinn, öllu hrært saman og smakkað til með karrýinu.

Fylltir sveppir:
stórir sveppir
mexíkósk ostarúlla
stilkarnir teknir úr sveppunum, ostinum smurt inn í holuna og grillað.

Grillaður ananas:
Ferskur ananas skorinn í sneiðar, grillað og penslað um leið með góðri olíu. 

EFTIRRÉTTUR
Frómas

2 egg
1 dl sykur
4 dl rjómi
1 dl sherry
6 matarlímsblöð
6 msk söxuð kokteilber
4 msk saxað súkkulaði

Aðferð: Rjóminn er þeyttur sér í skál, egg og sykur er þeytt mjög vel saman í annarri skál. Matarlímsblöðin brædd og kæld niður með sherry. Öllu blandað varlega saman en endað á þeytta rjómanum.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir