Stólastúlkur fá sterkt lið Grindavíkur í heimsókn

Toppliðin í Bónus deild kvenna, Tindastóll og Grindavík, mætast í Síkinu í kvöld og hefst veislan kl. 19:15. Liðin hafa unnið báða leiki sína til þessa, líkt og lið KR, og því þarf eitthvað undan að láta í kvöld. Að sjálfsögðu verða borgarar á grillinu fyrir leik og í Tindastólsbúðinni bíða glænýir bleikir bolir í tilefni af bleikum október.

Lið Grindavíkur er feikisterkt en þar fer fremst í flokki Abby Claire Beeman sem er stigahæst í deildinni með 25,5 stig að meðaltali en að auki hefur hún átt 12,5 stoðsendingar að meðaltali í leik. Það er því næsta víst að Israel Martín er búinn að brjóta heilann yfir því hvernig best sé að draga úr áhrifum hennar.

Nú er bara um að gera og fjölmenna í Síkið og hvetja Stólastúlkur. Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir