Lóa Travel og Selasetur Íslands í samstarfi um stafræna miðlun og nýjar hópaferðir á Vatnsnesi

Selir láta fara vel um sig. Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson.
Selir láta fara vel um sig. Mynd: Jóhann Óli Hilmarsson.

Lóa Travel og Selasetur Íslands vinna nú að þróun á stafrænni miðlun upplýsinga um Vatnsnes, ásamt því að hanna og bjóða upp á samsettar hópaferðir á svæðinu. Verkefnið hlaut nýverið styrk úr evrópska PHOENIX 4.0 verkefninu, sem m.a. er stýrt af Íslenska ferðaklasanum.

Markmið samstarfsins er að dýpka upplifun ferðamanna á Vatnsnesi með nútímalegri tækni og auðvelda aðgengi að fjölbreyttri sögu, náttúru og dýralífi svæðisins. Með stafrænni miðlun verður gestum gert kleift að dýpka þekkingu sína á selum, náttúru og sögustöðum á Vatnsnesi á gagnvirkan og sjálfbæran hátt. Samhliða þróun á stafrænni miðlun fróðleiks mun Lóa Travel hanna sérsniðnar hópferðir sem tengja saman leiðsögn, heimsókn í Selasetrið og upplifa náttúruperlur og sögustaði í Húnaþings vestra.

Snjallleiðsögnin er unnin í samstarfi við Sýndarveruleika ehf. sem hefur sérhæft sig í þróun tæknilausna og gagnvirkrar upplifunar fyrir söfn, sýningar og sögufræga staði. „Þetta samstarf gerir okkur kleift að nýta stafræna tækni til að miðla því sem Vatnsnes hefur uppá að bjóða og hækka hlutfall þeirra ferðamanna sem keyra fyrir nesið. Styrkurinn úr PHOENIX 4.0-verkefninu er mikilvægur og er bæði viðurkenning og innspýting í okkar starf“segir Örvar Birkir Eiríksson, framkvæmdastjóri Selasetursins. Freyja Rut Emilsdóttir hjá Lóu Travel segir verkefnið falla vel að áherslum þeirra á svæðinu: „Markmið Lóu Travel er að efla ferðaþjónustu á Norðurlandi vestra með því að búa til vandaðar pakkaferðir um svæðið. Við leggjum sérstaka áherslu á hæglætisferðaþjónustu og viljum hvetja gesti til að dvelja lengur á svæðinu, upplifa náttúruna og menninguna á sínum eigin hraða og kynnast öllu því sem Húnaþing vestra og nærsveitir hafa upp á að bjóða.“ Styrkurinn úr PHOENIX-verkefninu, sem stýrt er af Íslenska ferðaklasanum, miðar að því að styðja við nýsköpun, stafræna umbreytingu og sjálfbæra þróun í íslenskri ferðaþjónustu.

Bæði Örvar og Freyja segjast vonast til að þróa megi verkefnið áfram eftir að Phoenix 4.0 verkefninu lýkur og hægt verði að taka fyrir fleiri svæði á Norðurlandi vestra.

Fleiri fréttir