Nokkur orð í viku einmanaleikans | Gunnar Rögnvaldsson skrifar
„Ég vorkenni ekki þeim sem búa einir, en ég vorkenni þeim sem vilja vera einir.” Eitthvað á þá lund var haft eftir Hjörleifi Kristinssyni bónda og fræðimanni á Gilsbakka á Kjálka og vísað til þess að hann hefði aldrei ætlað sér að búa einn eins og hans hlutskipti varð lengst af ævinni, örlögin höguðu því bara svoleiðis.
Öfugt við þá ímynd sem dregin hefur verið upp af einsetufólki var Hjörsi ákaflega félagslyndur, duglegur að sækja mannamót og átti fjölda símavina og það var inntak orðanna, það er eitt að vera einn, annað að leita ekki eftir samneyti við aðra.
Kvenfélagasamband Íslands er þessa dagana með vitundarvakningu um einmanaleika. Mjög margt fólk býr einmitt við þær aðstæður að búa eitt án þess að hafa kosið sér. Makinn og vinirnir dánir, afkomendur, ef til eru, jafnvel búsettir langt í burtu og þetta allt mögulega samfara minnkaðri hreifigetu.
Ekkert af þessu þarf heldur að vera til staðar svo einmanaleiki búi ekki um sig. Gildir það ekki síður um þéttbýlið þar sem einhvers konar afskipaleysi gagnvart nágrönnum virðist fara vaxandi. Tæknin hefur vissulega opnað á nýja möguleika fyrir marga en ekkert kemur samt í staðinn fyrir mannleg samskipti augliti til auglitis.
Orlofsdvöl eldri borgara hér á Löngumýri hefur einmitt sem aðalmarkmið að rjúfa einangrun fólks og bjóða upp á samveru þar sem blandast saman gestir af öllu landinu, með ólíkan bakgrunn, áhugamál og lífshlaup. Af fenginni reynslu er það hreint út sagt dásamlegt að sjá gamla vini hittast að nýju, náin fjölskyldutengsl uppgötvast eða sterk vinabönd verða til á þeim 5-6 dögum sem hvert tímabil varir. Í kjölfarið heldur fólk gjarnan sambandi, hringist á og jafnvel heimsækir hvert annað þvert yfir landið. Á kveðjustund höfum við líka oft heyrt í raunalegum tón: „Æi, nú fer ég aftur að borða ein/einn” sem er býsna lýsandi fyrir líðan marga.
Í árdaga orlofsins kvað svo ramt að þegar dvalartíminn var að lokum kominn að einn gestanna hreinlega lagðist í rúmið af kvíða yfir komandi einsemd. Þetta varð þáverandi forstöðukonu á Löngumýri, Margréti Jónsdóttur, og Helgu Bjarnadóttur fv. skólastjóra Akraskóla að umhugsunarefni hvort ekki væri möguleiki á að hér í grendinni fyndist líka fólk sem væri einmana. Í kjölfarið hófu þær að stefna saman fólki hálfsmánaðarlega hér á Löngumýri frá hausti til vors, til að syngja, spila, spjalla og njóta góðra veitinga.
Nú áratugum síðar eru þessar samkomur enn við líði með óbreyttu formi. Það er nefnilega ennþá þannig hjá stórum hópi landsmanna, þrátt fyrir öll snjalltækin og öppin, að maður er manns gaman.
Lítum við, tökum upp símann – þeim tíma er vel varið.
Gunnar Rögnvaldsson
forstöðumaður á Löngumýri – Fræðslusetri þjóðkirkjunnar
Vika einmanaleikans – Hlekkur á netsíðu >
