1000 manns sáu Frá okkar fyrstu kynnum
Ætla má að um 1000 manns hafi séð afmælissýningu Leikfélags Sauðárkróks, Frá okkar fyrstu kynnum, en húsfyllir var á öllum sýningu nema einni.
Afmælisriti Leikfélags Sauðárkróks var dreift á öll heimili í Skagafirði í síðustu viku en í vetur fékk LS Héraðsskjalasafn Skagfirðinga til að taka saman ágrip af sögu félagsins í máli og myndum í tilefni af 120 ára afmæli LS. Unnar Ingvarsson hafði yfirumsjón með verkinu sem prýtt er miklum fjölda ljósmynda sem tengjast sögu Leikfélags Sauðárkróks og leiklist í Skagafirði.