14 milljónir til að ljúka iPadvæðingu

Í vikunni veitti verkefnisstjórn Sáttmála til sóknar í skólamálum í Skagafirði Fræðsluþjónustu Sveitarfélagsins Skagafjarðar styrk að upphæð 7 milljónir króna til að unnt væri að ljúka innleiðingu iPadvæðingu skólanna í Skagafirði. Kemur fjárhæðin á móti jafnháu framlagi sveitarfélagsins sem gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlun þessa árs.
Innleiðing iPad verkefnisins hófst árið 2014 þegar Sáttmáli til sóknar í skólamálum í Skagafirði, sem er í eigu Kaupfélags Skagfirðinga og sveitarfélaganna í Skagafirði, veitti Fræðsluþjónustu Sveitarfélagsins Skagafjarðar styrk að upphæð 4 milljónir króna. Verkefnið gengur út á að innleiða nýja kennsluhætti og nýja nálgun verkefna í skólunum.
„Óhætt er að fullyrða að hin nýja upplýsingatækni hefur gjörbreytt kennsluaðferðum og viðhorfi til náms og kennslu svo um munar. Það er einnig skoðun kennara og foreldra að kennsla með spjaldtölvum sem hjálpartæki beri með sér margar jákvæðar hliðarverkanir, svo sem eins og jafnari félagslega stöðu nemenda og breyttu viðhorfi til getu til náms og þroska“, segir á heimasíðu sveitarfélagsins.
Að sögn Bergmanns Guðmundssonar kennara í Árskóla mun skólinn eiga spjaldtölvur fyrir yngstu bekkina og mun hver tölva þjóna þremur nemendum. Þegar nemendur eru komnir í 5. bekk mun hver og einn nemandi vera með tölvu hvort sem þeir eiga hana sjálfir eða fá hana hjá skólanum. Nemendur eiga þess kost að eignast sína eigin spjaldtölvu á góðum kjörum sem er svo endurnýjuð í 8. bekk eða fá hana að láni í skólanum en þá er notkunin einskorðuð við skólatíma.
„Við fögnum þessari styrkveitingu sem mun svo sannarlega koma skólastarfinu og skólasamfélaginu til góða,“ segir Hanna Dóra Björnsdóttir skólastjóri Varmahlíðarskóla. Þar eru tveir árgangar á unglingastigi þegar komnir af stað en með þessum samningi verður skólanum gert kleift að halda spjaldtölvuvæðingunni áfram af metnaði og krafti. „Mikil framþróun hefur verið í upplýsingatækni undanfarin ár og teygir tæknin anga sína inn í skólastarfið, kennsluhættir eru sífellt að verða fjölbreyttari og aukin einstaklingsmiðun í námi.“
Myndir hér fyrir neðan eru fengnar frá Ingva Hrannari Ómarssyni verkefnastjóra.