Afar háar frjótölur þessa dagana
Óvenjugott veðurfar á landinu undanfarin misseri hefur leitt til þess að gróðurinn er mun fyrr á ferðinni þetta vorið en vanalega. Það hefur í för með sér að frjótölur eru nú mjög háar og á Akureyri mældust frjótölur birkifrjókorna 658 á sunnudaginn en það er allra hæsta frjótala sem mælst hefur á einum sólarhring á landinu samkvæmt frétt RUV í gær.
Í fréttinni er haft eftir framkvæmdastjóra Skógræktarfélags Eyjafjarðar, Ingólfi Jónssyni, að afar óvenjulegt sé að birki og annar gróður blómstri svo mikið á þessum árstíma. Segir hann ennfremur að gróður á Norðurlandi sé nú nokkuð samstíga því sem gerist á sunnanverðu landinu en vaninn er að gróður fari þar mun fyrr af stað.
Þeir sem þjást af frjókornaofnæmi ættu því að hafa varann á en Frjókornaofnæmi er eitt algengasta ofnæmið og kemur það fram í nefi og augum. Ástæðan er ofnæmi fyrir grasi, birki eða súrum þ.e. frjókornum frá gróðri. Margir þjást af ítrekuðu kvefi á hverju sumri áður en þeir átta sig á því að um frjókornaofnæmi er að ræða að því er segir á heimasíðu Astma- og ofnæmisfélags Íslands þar sem nálgast má ýmsan fróðleik þar að lútandi.