Ágóði Króksblóts til Völu Mistar
Árgangur ´64, sem sá um Króksblótið í ár á Sauðárkróki, hefur ákveðið að láta 100.000 króna ágóða þess renna til söfnunar Völu Mistar Valsdóttur og fjölskyldu sem enn dvelja í Svíþjóð vegna veikinda stúlkunnar.
Að sögn Báru Jónsdóttur, af ´64 árgangi, voru seldir 510 miðar á þorrablótið, öll skemmtiatriði heimasmíðuð, ekkert aðkeypt nema hljómsveitin, sem var að vísu meira og minna börn "64 árgangsins að hennar sögn.
Nýjasta færslan á styrktarsíðu Völu Mistar segir: " Vala Mist ofurhetja er búin í aðgerð á höfði þar sem hún fékk nýtt dren, læknarnir vildu drífa hana í aðgerð þar sem hún er laus við sýkinguna og það að tappa af bráðabirgðardreni býður hættunni heim varðandi sýkingar. Aðgerðin gekk vel og eru vonandi rólegir dagar fram undan þar sem við öll náum að jafna okkur eftir aðgerðirnar, en það verður að viðurkennast að foreldrunum finnst alltaf jafn erfitt að horfa á eftir henni inn á skurðstofuna."
Sjá nánar HÉR