Algjörlega fréttalaus frétt
feykir.is
Skagafjörður
28.05.2009
kl. 15.17
Þessi skemmtilega mynd á ekket skylt við fréttir eða fróðleik. Myndin er kannski táknræn fyrir það neyslusamfélag sem við búum í þar sem öllu er hent og fátt nýtt. Alla vega okkur fannst uppstillingin skemmtileg og ákváðum að deila þessu með ykkur.
Fleiri fréttir
-
S. Pedersen skoraði fyrir lið Tindastóls
Kvennalið Tindastóls skrapp austur á Reyðarfjörð í dag og spilaði við lið FHL í Fjarðabyggðarhöllinni í blankalogni. Þar með eru góðu fréttirnar að mestu upptaldar því annan leikinn í röð fékk liðið á sig átta mörk en stelpurnar okkar náðu þó að setja mark í dag. Það gerði S. Pedersen en essið stendur fyrir Sandra. Lokatölur 8-1.Meira -
Gæfan yfirgefur Kormák/Hvöt á ögurstundu
feykir.is Austur-Húnavatnssýsla, Íþróttir, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 29.08.2026 kl. 21.21 oli@feykir.isAustfirðingar í KFA mættu brattir á Blönduós í dag þar sem þeir fundu fyrir heimamenn í Kormáki/Hvöt. Tilefnið var knattspyrnuleikur í 20. umferð 2. deildar og voru aðstæður hinar bestu. Heimamenn höfðu tapað síðustu þremur leikjum og ætluðu að rétta úr kútnum í dag en gestirnir höfðu aðrar hugmyndir og stálu öllum stigunum með marki á áttundu mínútu uppbótartíma. Lokatölur 2-3.Meira -
Merking eyðibýla í Austurdal | Gísli Rúnar Konráðsson skrifar
Blaðamaður Feykis hafði samband og bað mig að segja lítillega frá ferð sem farin var fram í Austurdal nýlega, í þeim tilgangi að merkja eyðibýli og fornbýli. Það er sjálfsagt að verða við þeirri beiðni.Meira -
Stórleikur á Króknum þegar lið KH kemur í heimsókn
Spennan er nú í algleymingi í 3. deildinni í fótboltanum en fjögur lið berjast um sæti í 2. deild og þar á meðal er lið Tindastóls. Og ekki minnkaði spennan við það að Reynir Sandgerði, sem var í fjórða sæti fyrir 20. umferð, sigraði topplið Víðis og skaust þar með upp í annað sæti. Á morgun, laugardaginn 29. ágúst kl. 15. mætast liðin í 3. og 4. sæti á Króknum en það eru Tindastóll og KH. Semsagt; stórleikur og allir á völlinn!Meira -
Styttist í framkvæmdir við viðbyggingu Mjólkursamlags KS
„Já, það er fyrirhuguð viðbygging við Mjólkursamlag KS. Við þurfum að endurnýja og mögulega bæta við mjólkurtankana hjá okkur fyrir ostavinnsluna,“ sagði Reimar Marteinsson, rekstrarstjóri Mjólkursamlags KS, þegar Feykir spurðist fyrir um framkvæmdir við viðbyggingu samlagsins. „Vinnuvélar Símonar fara fljótlega að hefja gröft á lóðinni, við stefnum svo á að hefja framleiðslu í húsinu seinnihluta næsta árs.“Meira
