Bátur í vanda á Skagafirðinum
feykir.is
Skagafjörður
06.07.2009
kl. 13.36
Björgunarsveitir frá Sauðárkróki og Hofsósi voru kallaðar út fyrir stundu með dælur slökkviliðsins til að aðstoða bát sem var staddur rétt við Drangey. Leki kom að bátnum.
Að sögn Lögreglunnar á Sauðárkróki er báturinn nú kominn í tog á leið í land. Ekkert amar að skipverjum enda gott veður. Báturinn er gerður út frá Hofsósi.
Fleiri fréttir
-
Grindavíkurliðið sterkara í Smáranum
Ekki náðu lið Tindastóls að tryggja sér sæti í úrslitum VÍS bikarsins að þessu sinni. Strákarnir töpuðu gegn KR í naglbít eins og áður hefur komið fram. Í gær mættu Stólastúlkur toppliði Grindavíkur í Smáranum og var leikurinn í járnum fram yfir miðjan þriðja leikhluta en þá tók Abby Beeman yfir leikinn og fór svo að Grindvíkurliðið vann að. lokum 25 stiga sigur, 74-99.Meira -
Verður Hólastaður seldur? | Jón Bjarnason skrifar
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Aðsendar greinar, Vestur-Húnavatnssýsla 05.02.2026 kl. 08.40 oli@feykir.isÞau tíðindi eru í vændum að Hólaskóli á Hólum í Hjaltadal verði sviptur sjálfstæði sínu og færður sem deild undir Háskóla Íslands. Samhliða mun starfsemi skólans að stóru leyti fara frá Hóla-stað á Sauðárkrók eða til Reykja-víkur. Þá er ráðgert að hin sögufrægu skólahús – teiknuð af þeim Guðjóni Samúelssyni og Rögnvaldi Ólafssyni - er hafa hýst starfsemi skólans í meir en heila öld - verði framseld til einkaaðila.Meira -
Nú þurfa Stólastúlkur á þér að halda í Smáranum í kvöld!
Kvennalið Tindastóls spilar í fyrsta sinn í sögu Tindastóls í undanúrslitum í bikarkeppni KKÍ í kvöld en keppnin ber nú nafn VÍS. Andstæðingarnir eru ekki af verri endanum því topplið Grindavíkur bíður Stólastúlkna í Smáranum og hefst leikurinn kl. 20:00 í kvöld. Nú verða allir sem vettlingi geta valdið að fjölmenna í Kópavoginn og styðja stelpurnar okkar – þær eiga það ekki síður skilið en strákarnir að við styðjum þær!Meira -
Besti Íslendingurinn frá Hofsstaðaseli
Aðalfundur Félags kúabænda í Skagafirði 2026 var haldinn 28. janúar sl. á Kaffi Krók. Afar vel var mætt á fundinn, með mesta móti að sögn Þórdísar formanns FKS. Gestir fundarins að þessu sinni voru þeir Ágúst Torfi Hauksson og Fannberg Jensen frá Kjarnafæði Norðlenska og svo Guðrún Björg Egilsdóttir sérfræðingur á sviði nautgriparæktar hjá Bændasamtökum Íslands og fluttu þau áhugaverð og gagnleg erindi fyrir framleiðendur í héraðinu.Meira -
Ertu með hugmynd að nafni á nýja blóðgjafabílinn?
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 04.02.2026 kl. 13.34 oli@feykir.isNú hleypur svolítið á snærið hjá Blóðbankanum því hann er bæta við sig litlum blóðgjafabíl sem verður staðsettur á Akureyri. Búist er við að bíllinn verði klár í apríl. „Það er gríðarlega gott fyrir okkur á Norðurlandi þar sem við getum aukið þjónustuna til muna. Stóri bíllinn hefur komið tvisvar á ári á Sauðárkrók og Blönduós en við vonumst til að geta komið oftar,“ segir í tilkynningu frá Blóðbankanum.Meira

