Bilun í myndlyklum hjá Vodafone

Eftir rafmagnsleysið sem varð fyrr í vikunni hafa sjónvarpsnotendur hjá Vodafone og eru á dreifikerfi Gagnaveitu Skagafjarðar lítið getað horft á sjónvarp. Því veldur bilun sem auðvelt er að lagfæra.

Hjá Gagnaveitu Skagafjarðar fengust þær upplýsingar að þeir  sem ekki ná útsendingu Vodafone og væru á dreifikerfi Gagnaveitu Skagafjarðar eru vinsamlegast beðnir að hafa samband í þjónustusíma fyrirtækisins 1414 og láta endurstilla myndlykilinn hjá sér. þá ætti vandamálið að leysast.

Fleiri fréttir