Blóðbankabíllinn á ferðinni

Blóðbankabíllinn verður með blóðsöfnun á Sauðárkróki miðvikudaginn 10. maí  frá kl. 12:00-17:00 og fimmtudaginn 11. maí  frá kl. 09:00-11:30. Bíllinn verður á planinu við Skagfirðingabúð. Hann verður svo á Blönduósi fimmtudaginn 11. maí frá klukkan 14:00 til 17:00 þar sem hann verður staðsettur á planinu hjá N1. 

Allir sem eru 18 ára og eldri eru velkomnir til að gefa blóð, jafnt nýir sem vanir blóðgjafar. Hægt er að kynna sér reglur varðandi blóðgjöf á vef Blóðbankans.

Blóðbankinn þarf 70 blóðgjafa á dag og vonast eftir að sjá sem flesta. - Blóðgjöf er lífgjöf.

Fleiri fréttir