Dagurinn í dag
Þegar ekkert er að gerast í kringum mann og dagurinn virðist vera einn af þessum einstaklega venjulegu dögum getur verið gaman að kíkja eftir því á netinu hvort alltaf hafi verið tíðindalaust þennan tiltekna dag sem er 87. dagur ársins. Að sjálfsögðu kemur á daginn að ýmislegt hefur gerst í gegnum tíðina þann 28. mars. Hér eru tíndir saman nokkrir atburðir sem tilgreindir eru á Wikipedia:
- Árið 1797 fékkst einkaleyfi fyrir fyrstu þvottavélinni í Bandaríkjunum en það var ekki fyrr en árið 1969 sem fyrsta rafmagnsþvottavélin var sett á markað.
- Árið 1854 hófst Krímstríðið þegar Bretar og Frakkar sögðu Rússum stríð á hendur. Þrætueplið var útþensla Rússa við Svartahaf. Stríðið stóð í tæplega tvö og hálft ár og er álitið fyrsta nútímastríðið þar sem talið er að ýmsar tæknilegar nýjungar hafi verið prófaðar. Florence Nightingale vann við hjúkrun í Krímstríðinu og linaði þjáningar sjúkra og særðra hermanna og hlaut þar sitt fræga viðurnefni „konan með lampann“ vegna venju sinnar að ganga á milli manna að næturlagi með lampa í hönd til að hjúkra þeim.
- Árið 1875 hófst Öskjugos sem er talið eitt mesta öskugos á Íslandi eftir að landið byggðist. Þegar gosið hafði staðið í hálfan annan sólarhring urðu menn í Svíþjóð varir við gosmökkinn. Í kjölfar þessa goss flutti fjöldi fólks af austanverðu landinu til Vesturheims.
- Árið 1881 gengu tveir menn á hafís alla leiðina frá Siglufirði til Akureyrar. Þessi vetur er með þeim hörðustu sem vitað er um á Íslandi.
- Árið 1929 tók geðsjúkrahúsið á Kleppi til starfa.
- Árið 1956 samþykkti Alþingi Íslendinga að Bandaríkjaher skyldi yfirgefa Ísland. Af því varð þó ekki fyrr en 2006.
- Árið 1978 lést Vilhjálmur Vilhjálmsson söngvari í bílslysi í Luxemborg.
- Árið 1986 spiluðu sex þúsund útvarpsstöðvar út um allan heim samtímis lagið „We are the world“ til styrktar aðgerðum gegn hungursneyð í Afríku.
- Árið 2007 var frumvarp um Vatnajökulsþjóðgarð samþykkt á Alþingi.
Meðal afmælisbarna dagsins eru svo Harpa Arnardóttir leikkona sem fædd er árið 1964, Vince Vaughn leikari, fæddur 1970 og hin stórkostlega söngkona Stefani Joanne Angelina Germanotta sem fleiri þekkja eflaust betur undir nafninu Lady Gaga. Hún fagnar 31 árs afmæli í dag.