Degi barnabókarinnar fagnað

Frá lestrarstund í Grunnskólanum austan Vatna. Mynd af Facebooksíðu skólans.
Frá lestrarstund í Grunnskólanum austan Vatna. Mynd af Facebooksíðu skólans.

Dagur barnabókarinnar er haldinn hátíðlegur ár hvert á fæðingardegi H.C. Andersen sem er 2. apríl. IBBY á Íslandi, félagasamtök um barnabókmenntir og barnamenningu á Íslandi, hafa undanfarin ár fagnað deginum með því að færa íslenskum grunnskólanemendum sögu að gjöf sem lesin er samtímis um allt land. Sagan sem nú verður lesin heitir Stjarnan í Óríon og er eftir Hildi Knútsdóttur.  Þar sem 2. apríl í ár ber upp á sunnudag verður sagan frumflutt í öllum grunnskólum landsins á morgun, fimmtudaginn 30. mars, kl. 9:10. Sagan verður samtímis flutt á Rás 1 svo að öll þjóðin getur lagt við hlustir.   

Hildur skrifaði söguna Stjarnan í Óríon fyrir börn á aldrinum 6-16 ára í tilefni dags barnabókarinnar að beiðni IBBY á Íslandi, en þetta er í sjöunda sinn sem félagið fagnar deginum með þessum hætti. Hildur hlaut fyrr í vetur Íslensku bókmenntaverðlaunin  í flokki barna- og ungmennabóka fyrir nýjustu bók sína, Vetrarhörkur, en bækur hennar hafa fengið fjölda verðlauna og viðurkenninga. Stjarnan í Óríon fjallar um stúlkuna Þebu sem uppgötvar glænýja stjörnu á himinhvolfinu. Hildur segir um söguna:  

„Alheimurinn er svo fáránlega stór og við vitum í rauninni svo rosalega lítið um hann. Við gleymum því stundum því við erum svo upptekin af okkar daglega amstri. Þess vegna langaði mig til að skrifa sögu um dularfulla stjörnu sem birtist skyndilega á himnum og möguleikann á því að við séum ekki ein í heiminum.“  

Sagan verður lesin fyrir grunnskólabörn á öllum aldri og er verkefnið hluti af þeirri hugsjón félagsins að lestraráhugi og lestrarfærni fáist fyrst og fremst með því að færa ungum lesendum vandaðar og spennandi sögur.

 

Fleiri fréttir