Edduverðlaunagripurinn smíðaður í FNV

Geir Eyjólfsson, Ingileif Oddsdóttir og Björn Sighvatz. Mynd: PF.
Geir Eyjólfsson, Ingileif Oddsdóttir og Björn Sighvatz. Mynd: PF.

Nýlega fór fram tilnefning til Edduverðlaunanna en þau verða afhent við hátíðlega athöfn þann 26. febrúar nk.  Þá var einnig kynntur til sögunnar nýr verðlaunagripur sem nú verður afhentur í fyrsta sinn og er hannaður af Árna Páli Jóhannssyni, myndlistarmanni, og leysir hann af hólmi fyrri styttu sem hefur verið veitt frá upphafi, árið 1999.

Það er gaman frá því að segja að Íslenska kvikmynda- og sjónvarpsakademían hefur gert samning til fimm ára við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra um smíði á gripnum.  Tíðindamaður Feykis brá undir sig betri fætinum og heimsótti FNV í þann mund sem þeir Björn Sighvatz og Geir Eyjólfsson voru að pakka styttunum áður en þær verða sendar akademíunni.
Edduverðlaunagripum pakkaðUm er að ræða þróunarverkefni innan skólans  og er það skemmtilegt og krefjandi verkefni að geta sett í þetta framleiðslu þannig að nemendur séu þátttakendur í þessu á einn eða annan hátt, sumir í aðalhlutverkum, aðrir í aukahlutverkefnum eins og Geir segir.  Alls komu um 30 nemendur að verkinu á einhvern hátt og var allt ferlið sett upp í gæðahandbók sem verður hluti af námsefninu.  Mikil vinna liggur í smíðinni og þó að fljótt á litið virðist gripurinn nokkuð einfaldur er raunin sú að hárfín nákvæmni liggur að baki þar sem ekki má skeika einum hundraðasta úr millimetra til að hlutarnir smelli ekki saman á réttan hátt.  Þar kemur sér vel að hátæknimenntasetur skólans er mjög vel tækjum búið. 

Nánar verður fjallað um Edduna í næsta tölublaði Feykis.

Fleiri fréttir