Ef þetta fær þig ekki til að brosa smá þá er eitthvað að - myndband
Er ekki alltaf talað um að hláturinn lengir lífið:)
þá skaltu horfa á þetta ef þú vilt lengja það um nokkra klukkutíma...
Fleiri fréttir
-
KR-ingar hefndu fyrir tapið í VÍS bikarnum
Stólastúlkur heimsóttu Meistaravelli KR-inga í kvöld í Bónus deildinni. Liðin mættust síðastliðinn laugardag á Króknum í VÍS bikarnum og þá hafði lið Tindastóls betur í leik þar sem þær höfðu yfirhöndina nánast allan tímann en unnu nauman sigur í lokin. Að þessu sinni voru KR-ingar mun grimmari og gáfu liði Tindastóls engin grið. Lokatölur 82-64.Meira -
Fimm heimamenn skrifa undir hjá Stólunum
Nú í kvöld gaf knattspyrnudeild Tindastóls út yfirlýsingu þar sem segir að fimm heimamenn leikmannahópi meistaraflokks karla hafi skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Sannarlega góðar fréttir og ánægjulegt að góður kjarni heimamanna haldi tryggð við sitt uppeldisfélag sem er nú ekki gefið á þessum síðustu.Meira -
Bóndinn játaði skýlaust sök fyrir dómi
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla, Lokað efni 13.01.2026 kl. 20.51 oli@feykir.isNautgripabóndi sem hlaut sex mánaða skilorðsbundinn fangelsisdóm fyrir að vanrækja dýr sín var í miklu andlegu ójafnvægi þegar brotin áttu sér stað. Eftirlitsmenn Matvælastofnunar fundu 29 dauða nautgripi í gripahúsi á bæ bóndans árið 2024. Stofnunin lét aflífa eða slátra 49 gripum til viðbótar vegna slæms ástands þeirra. Í frétt á Vísi.is segir að dómur yfir bóndanum hafi fallið í nóvember.Meira -
Tindastólsmenn sóttu sigur í Bogann
Leik var haldið áfram í Kjarnafæðimótinu í knattspyrnu um helgina en á föstudagskvöldið mættust lið Tindastóls og KA3 í B-deildinni og var spilað í Boganum. Akureyringar misstu mann af velli með rautt spjald snemma leiks og þrátt fyrir góða baráttu þeirra gulu og bláu þá tóku Stólarnir völdin og unnu að lokum góðan 6-1 sigur.Meira -
Vetrarveður og ófærð í Skagafirði en ekki bólaði á gulri veðurviðvörun
feykir.is Skagafjörður, Austur-Húnavatnssýsla, Vestur-Húnavatnssýsla 13.01.2026 kl. 08.53 oli@feykir.isÞað hefur verið leiðinlegt vetrarveður í Skagafirði síðasta sólarhringinn og þar er nú éljagangur eða skafrenningur víðast hvar. Ekki var gefin út gul veðurviðvörun, það Feykir best veit, fyrir Strandir og Norðurland vestra og það er nú örugglega eitthvað sem í það minnsta Skagfirðingar geta klórað sér í kollinum yfir í dag. Verið er að moka göturnar á Króknum en þar var erfið færð í morgun, rösk norðanátt og éljagangur og þrengri götur fullar af snjó þannig að reyndir ökuþórar sátu fastir.Meira
