Eiríkur Rögnvaldsson sæmdur riddarakrossi

Tólf voru sæmdir riddarakrossi á Bessastöðum í gær, þeirra á meðal Skagfirðingurinn Eiríkur Rögnvaldsson. Mynd: forseti.is.
Tólf voru sæmdir riddarakrossi á Bessastöðum í gær, þeirra á meðal Skagfirðingurinn Eiríkur Rögnvaldsson. Mynd: forseti.is.

Skagfirðingurinn Eiríkur Rögnvaldsson prófessor var í gær sæmdur riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu, sem forseti Íslands afhenti við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Riddarakrossinn hlaut Eiríkur fyrir fram til íslenskra málvísinda og forystu á sviði máltækni.

Samkvæmt tilkynningu frá skrifstofu forseta Íslands voru tólf sæmdir riddarakrossi í gær, sex konur og sex karlar, en þau eru:

Benóný Ásgrímsson fyrrverandi þyrluflugstjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir björgunarstörf og framlag til íslenskra flugmála

Björn G. Björnsson leikmynda-og sýningahönnuður, Reykjavík, riddarakross fyrir frumherjastörf á vettvangi íslensks sjónvarps og framlag til íslenskrar safnamenningar

Eiríkur Rögnvaldsson prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra málvísinda og forystu á sviði máltækni

Gerður Guðmundsdóttir Bjarklind fyrrverandi útvarpsmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir störf á vettvangi hljóðvarps

Gunnhildur Óskarsdóttir dósent og formaður Styrktarfélagsins Göngum saman, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til stuðnings krabbameinsrannsóknum og til heilsueflingar

Kolbrún Halldórsdóttir leikstjóri og forseti Bandalags íslenskra listamanna, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til leiklistar og störf í þágu íslenskra listamanna

Peggy Oliver Helgason iðjuþjálfi, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að málefnum veikra barna á Íslandi

Ragnar Kjartansson myndlistarmaður, Reykjavík, riddarakross fyrir

framlag til íslenskrar og alþjóðlegrar myndlistar

Sigríður Sigþórsdóttir arkitekt, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar húsagerðarlistar

Sigurður Pálsson rithöfundur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til íslenskra bókmennta og menningar

Þorbjörg Arnórsdóttir forstöðumaður, Hala II í Suðursveit, riddarakross fyrir menningarstarf í heimabyggð

Þór Jakobsson veðurfræðingur, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag á sviði umhverfisvísinda og til miðlunar þekkingar

 

Fleiri fréttir