Ekki kalt og snjólétt segja Dalbæingar

Vetrarsól. Mynd PF.
Vetrarsól. Mynd PF.

Í gær  komu félagar í Veðurklúbbnum á Dalbæ saman til fundar á nýbyrjuðu ári.  Fundurinn hófst kl. 14:00 og stóð yfir í 25 mínútur en fundarmenn voru þrettán talsins. Klúbbfélagar voru vel sáttir með hvernig til hefði tekist með veðurspá fyrir desembermánuð og raunar allt síðast liðið ár. Nýtt tungl kviknaði 29. des. í austri, sem var jólatungl og síðan kviknar nýtt tungl 28. janúar í NV. Það laugardagstungl sem þykir boða gott.

Veður í janúar verður heldur vindasamara þar sem vindar blása úr ýmsum áttum. Ekki kalt miðað við árstíma og snjólétt. Veður mun að öllum líkindum breytast seinni hluta mánaðarins og snjóar þá lítillega, en ekkert til að hafa áhyggjur af.

Veðurvísa janúar

Tólf eru synir tímans,
sem tifa fram hjá mér.
Janúar er á undan,
með árið í faðmi sér.

Fleiri fréttir