Fagnar hundrað ára afmæli

Sigurpáll á hundrað ára afmælinu. Mynd úr einkasafni.
Sigurpáll á hundrað ára afmælinu. Mynd úr einkasafni.

Sigurpáll Árnason, fyrrum verslunarmaður og  garðyrkjubóndi í Lundi í Varmahlíð fagnaði 100 ára afmæli í gær.

Sigurpáll fæddist og ólst upp í Ketu í Hegranesi. Hann var einn af fyrstu nemendum Garðyrkjuskólans í Hveragerði þar sem hann stundaði nám árið 1939 og var fyrsti garðyrkjubóndinn í Skagafirði en hann byggði gróðrarstöð að Gamla Lundi í Varmahlíð þar sem hann ræktaði grænmeti og sumarblóm ásamt konu sinni, Hildi Kristjánsdóttur. Á árunum 1958 til 1984 ráku þau hjónin verslunina Lund sem staðsett var í samnefndu húsi sem þau byggðu sér, rétt við þjóðveginn sem liggur í gegnum Varmahlíð.

Sigurpáll er við ágæta heilsu og ber aldurinn vel.  Hann les mikið, helst ævisögur og viðtalsbækur. Þá hefur hann mikinn áhuga á að spila bridge og segist gera það eins oft og hægt er en hann fær gjarna gamla spilafélaga í heimsókn til sín á Hrafnistu í Boðaþingi þar sem hann býr nú og unir hag sínum vel. „Það er gott að vera í Boðaþingi,“ segir hann.

Sigurpáll starfaði í 55 ár með Karlakórnum Heimi og var að eigin sögn á kafi í félagsmálum meðan hann bjó í Skagafirði. Einnig segist hann hafa stundað fjallaferðir töluvert.

Hildur, kona Sigurpáls, lést árið 2004. Þau hjónin eignuðust fimm börn og afkomendurnir eru orðnir 42.  

Fleiri fréttir