Félagsmálastjóri í stað Þórunnar Elfu
Félags- og tómstundanefnd leggur til við sveitarstjórn að Félagsmálastjóri taki sæti Þórunnar Elfu Guðnadóttur í þjónustuhóp aldraðra í Skagafirði.
Þjónustuhópur aldraðra skal starfa í sveitarfélaginu skv. lögum um málefni aldraðra. Með nýjum lögum um vistunarmat hefur hlutverki þjónustuhóps verið breytt og hefur dregist að fullskipa í hópinn. Jafnframt er farið fram á við sveitarstjórn að leitað verði tilnefningar fulltrúa Heilbrigðisstofnunar og Félags eldri borgara í Skagafirði í þjónustuhópinn.