Fjöldi leitarmanna tóku þátt í leit að Birnu

Fjölmennur hópur frá Björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd tók þátt í leitinni að Birnu um helgina. Mynd: Bjsv. Strönd.
Fjölmennur hópur frá Björgunarsveitinni Strönd á Skagaströnd tók þátt í leitinni að Birnu um helgina. Mynd: Bjsv. Strönd.

Einbeiting, kraftur og samkennd einkenndu hóp björgunarsveita landsins um helgina þegar leitað var að Birnu Brjánsdóttur en um umfangsmestu leit var að ræða sem Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur skipulagt hingað til. Félagar úr björgunarsveitum á Norðurlandi vestra slógust í hópinn en um 500 björgunarsveitamenn, tóku þátt í leitinni. Eins og fram kom á blaðamannafundi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu fannst Birna í gær og var hún þá látin.

Tveir hópar fóru sitthvorn daginn frá Björgunarsveitinni Húnum á Hvammstanga, þrír menn fóru frá Bjsv. Blöndu á Blönduósi á jeppa og með sexhjól. Frá Bjsv. Strönd á Skagaströnd fóru ellefu manns á Econoline og tóku þátt í göngu leit á laugardag. Á föstudag fóru frá Skagfirðingasveit á Sauðárkróki tveir bílar með átta manns innanborðs og leituðu báða helgidagana. Tveir menn frá Björgunarsveitinni Gretti á Hofsósi fóru með eitt sexhjól á beltum. Voru þeir í samfloti með Flugbj.sveitinni í Varmahlíð sem voru þrír. Að sögn Þorsteins Guðmundssonar formanns Flugbjörgunarsveitarinnar fóru um 20 manns í heildina af svæðinu en Siglfirðingar teljast einnig til þess. Auk þess voru í þessum hópi aðgerðastjórnendur. „Það sem rak okkur í þetta verkefni er samkennd og einnig það að Birna tengist hingað í fjörðinn. Það voru allir klárir í að fara og þurfti ekki að reka á eftir fólki að fara,“ segir Þorsteinn.

Tenging Birnu við Skagafjörð er að móðurafi og amma búa á Sauðárkróki. Mikill samhugur og sorg ríkir hjá landsmönnum og vottar Feykir fjölskyldu Birnu innilega samúð.

Á föstudaginn fóru frá okkur tveir bílar með 8 manns innanborðs, búnir til hefðbundinnar leitar á landi. Við leituðum bæði í dag og í gær.

Fleiri fréttir