Flutningabíll valt á Reykjastrandarvegi
Flutningabíll með minkafóður valt á Reykjastrandarvegi, við bæinn Daðastaði, fyrir hádegi í dag. Til allrar hamingju slapp bílstjórinn ómeiddur en á þessum slóðum er vegurinn mjór og skurður við hlið hans. Mjúkur kanturinn mun hafa gefið sig undan þunga bílsins.
Samkvæmt frétt á Mbl.is hefur verið gengið úr skugga um að engin olía leki úr bílnum og verður hann líklega réttur við og dreginn upp á veg á morgun.