Framsóknarmenn fagna samstöðu um Árskólabyggingu

framsokn1Aðalfundur Framsóknarfélags Skagafjarðar, sem haldinn var í síðustu viku, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem fundarmenn lýsa ánægju sinni með þá breiðu samstöðu sem er að skapast í sveitarstjórn um uppbyggingu Árskóla.
Er það mat fundarmanna að framkvæmdin muni leiða til hagkvæmara og betra skólastarfs á Sauðárkróki og tryggja um leið fjölda manns vinnu á byggingartímanum sem sé mikilvægt við þær aðstæður sem uppi eru í samfélaginu.

Fleiri fréttir