Fulltrúar Protis í föruneyti forsetans í Danmörku

Skagfirska líftæknifyrirtækinu Protis var boðið að taka þátt í fyrstu opinberu heimsókn Forseta Íslands, hr. Guðna Th. Jóhannessonar, til Danmerkur á dögunum. Það voru þær Laufey Skúladóttir markaðs- og sölustjóri FISK Seafood og Íris Björk Marteinsdóttir sölu- og gæðastjóri Protis sem fóru sem fulltrúar fyrirtækisins. Var þeim boðið að taka þátt í dagskrá tengdri heimsókninni. „Það er mikill heiður fyrir Protis að vera boðið að taka þátt í stórum viðburði af þessu tagi og viðurkenning á starfinu sem unnið er hérna á Sauðárkróki,“ sagði Laufey í samtalið við Feyki.
Dagskráin sem þær Íris og Laufey tóku þátt í fólst m.a. í málstofu hjá Dansk Industri sem bar heitið Innovatin, Sustainability and Food Production. Þar var lögð áhersla á nýsköpun í íslenskum sjávarútvegi. Fulltrúar íslensku fyrirtækjanna Marel, Kerecis og Codland voru einnig með í för. „Kynningin á fyrirtækinu mæltist vel fyrir hjá fulltrúum danskra fyrirtækja sem sóttu málstofuna hjá Dansk Industri og vöktu vörurnar og vísindin að baki þeim mikla athygli. Hafa þónokkur fyrirtæki þegar haft samband með frekara samstarf í huga,“ segir Laufey m.a. í umfjöllun um heimsóknina í nýjasta tölublaði Feykis.