Fyrstu gangbrautarljósin sett upp á Sauðárkróki
Í dag verða gangsett gangbrautarljós við Árskóla á Sauðárkróki. Gangandi vegfarendur ýta á hnapp til að óska eftir „grænum karli“ og virkja rautt ljós á ökutæki. Sérstakir skynjarar nema nærveru gangandi vegfarenda á leið yfir götu og er ljósatími stilltur eftir því hversu lengi viðkomandi er á leið yfir götuna.
Að sögn Indriða Einarssonar sviðsstjóri veitu- og framkvæmdasviðs er markmið með uppsetningu ljósanna að auka öryggi gangandi vegfaranda, ekki síst skólabarna á leið í og úr skóla.
Þegar Feyki bar að garði var verið að leggja lokahönd á tengingar og munu ljósin verða virk í lok dags.