Harðfiskurinn góði kominn aftur
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
15.10.2009
kl. 08.50
Fjáraflanir íþróttafélaga og deilda er stór þáttur í starfi þeirra og margt í boði allan ársins hring. Nú hefur frjálsíþróttadeild Tindastóls fengið aftur í sölu harðfiskinn góða og ódýra í 1/2 kg pakkningunum.
Pokinn kostar aðeins kr. 2.500 og pantanir skulu sendar á netfangið hennar Gígju: helgas@vis.is. Fyrstur kemur - fyrstur fær segir Gígja og lofar heimsendingarþjónustu á Sauðárkróki