Krossgátuverðlaun Fermingafeykis
Dregið hefur verið úr innsendum lausnum í verðlaunakrossgátu fermingarblaðs Feykis. Þátttaka var mjög góð og allar lausnir réttar sem sendar voru inn. Feykir þakkar öllum fyrir þátttökuna. Rétt lausn er: Gleðilega páska.
Tvenn bókaverðlaun voru í boði fyrir heppna krossgátuunnendur og fær hvor vinningshafi fyrir sig bókina Eldað undir bláhimni. Þær heppnu eru:
Sigríður Guðmundsdóttir
Mosfellsbæ
og
Jóhanna Sveinbjörg Traustadóttir
Hofsósi
Feykir óskar vinningshöfum til hamingju og eru bækurnar þegar komnar af stað til vinningshafa.