Linda Björk sigraði á Áramóti Fjölni
feykir.is
Skagafjörður, Íþróttir
30.12.2008
kl. 09.47
Linda Björk Valbjörnsdóttir sigraði í 60m hlaupi meyja á Áramóti Fjölnis, sem fram fór í Laugardalshöllinni í Reykjavík sunnudaginn 28. desember s.l. Linda Björk hljóp á 8,16 sek og var nálægt sínum besta tíma.
Linda hefur átt við þrálát meiðsli að stríða síðan í vor og því er þessi árangur nú sérlega ánægjulegur.
Heimild: Tindastóll.is