Listaskóli fyrir ungt fólk á Norðurlandi vestra
Samtök sveitarfélaga á Norðurlandi vestra hafa samið við Katie Browne, MFA Writing & Integrated Media, um að kanna möguleika á og koma með tillögur að framkvæmd listaskóla fyrir ungt fólk á Norðurlandi vestra. Markmiðið verkefnisins er að efla þekkingu og færni í listum og skapandi greinum hjá áhugasömum börnum og unglingum í landshlutanum með því að veita þeim tækifæri til að styrkja kunnáttu sína og hæfileika á þessu sviði.
Að verkefninu loknu er reiknað með að fyrir liggi mótuð hugmynd að listaskóla fyrir ungt fólk á Norðurlandi vestra. Niðurstöður verkefnisins verða öllum aðgengilegar og gætu því áhugasamir aðilar í framhaldinu hugað að stofnun listaskóla á svæðinu. Frá þessu greinir á heimasíðu SSNV.
Katie Browne mun leita til íbúa Norðurlands vestra vegna viðhorfs- og áhugakönnunar og er vonast til að verkefnið hljóti góðar viðtökur.