Mynd Stefáns Friðriks í úrslit

Yfirborð, mynd Stefáns Friðriks Friðrikssonar er komin í úrslit á Stuttmyndadögum Reykjavíkur sem haldnir eru í Kringlubíói.

Er mynd Stefáns ein af 19 myndum sem komust í úrslit en alls voru sendar 90 myndir inn í keppnina. Yfirborð er útskrifar verkefni Stefáns Friðriks úr Kvikmyndaskóla Íslands en Stefán hlaut Bjarkann, verðlaun skólans, fyrir myndina. Stefán Friðrik vinnur þessa  dagana við kvikmyndagerð hjá Skottu kvikmyndafjélagi í Skagafirði.

Fleiri fréttir