Nýir rekstraraðilar á Sólgörðum
Síðastliðinn föstudag opnaði sundlaugin á Sólgörðum hjá nýjum rekstraraðilum en á miðvikudeginum voru undirritaðir samningar við fyrirtækið Sótahnjúk sem mun annast alla umsjón og bera ábyrgð á starfssemi laugarinnar næstu þrjú árin.
Samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu Sveitarfélagsins Skagafjarðar verður sundlaugin opin í sumar, fram í miðjan ágúst, alla virka daga, nema þriðjudaga, kl 15-21 og laugardaga og sunnudaga kl 12-17.