Nýr stígur upp á Nafir
Árvökulir Króksarar hafa efalaust tekið eftir að talsvert hefur verið framkvæmt til að fegra ásýnd bæjarins í sumar; blómaskrúð víða og aðgengi fyrir göngufólk bætt á Nöfum svo eitthvað sé nefnt og nú í síðustu viku var gerður stígur í Nafirnar frá neðra tjaldsvæði og upp á það efra – eða öfugt.
Það voru vaskir starfsmenn Þ. Hansen ehf. sem höfðu veg og vanda að stígagerðinni sem nánar tiltekið liggur frá Flæðunum og upp á nýjan göngustíg á Nöfunum sem er lagður í gamla kindagötu.
Það styttist í Króksmót og þá hefur jafnan verið mikið rölt á fólki upp og niður Nafirnar og kannski ekki allir jafn liprir í brekkunni og stígagerð því í raun öryggisatriði.
Það má sjá á samfélagsmiðlum að ekki eru allir á eitt sáttir við framkvæmdina. Sumum finnst stígurinn eyðileggja ásýnd Nafanna, aðrir hafa áhyggjur af vatnsrennsli og því hvernig gengið verður frá stígnum og hvort hlaðið verður meðfram sárinu líkt í Kirkjustígnum góða. Svo finnst öðrum stígurinn hið besta mál.
Myndirnar sem hér fylgja eru af FB-síðu Þ.Hansen ehf.