Ökumenn eins og beljur að vori!

Mynd af Facebooksíðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra.
Mynd af Facebooksíðu lögreglunnar á Norðurlandi vestra.

Óhætt er að segja að vegfarendur á Norðurlandi vestra hafi sprett úr spori um helgina en á Facebooksíðu lögreglunnar segir að þeir hafi hagað sér líkt og beljur að vori. Þannig höfðu 30 ökumenn verið stöðvaðir fyrir of hraðan akstur seinni part föstudags og í gær hafði á þriðja tug ökumanna fengið að líta stöðvunarljósin.

Ennfremur segir á Facebooksíðunni að ökumenn beri gjarna fyrir sig gott veður og færi en ákvæði um slíkt sé þó ekki að finna í umferðarlögunum. Sá sem hraðast ók mældist á 150 km hraða og mun hans bíða 130.000 króna fjársekt, svipting ökuleyfis i einn mánuð og þrír refsipunktar í ökuferilsskrá ef marka má sektarreikna á heimasíðu Samgöngustofu. Já, það er vissulega óþarfa eyðilegging á góðum degi.

Fleiri fréttir