Opnað í dag á Sólgörðum

Sumaropnun sundlaugarinnar á Sólgörðum í Fljótum gengur í gildi í dag og um leið hefst starfsemi ferðaþjónustunnar sem þau Kristín Sigurrós Einarsdóttir og Alfreð Símonarson ætla að reka þar í sumar.

Sundlaugin verður opin alla virka daga nema þriðjudaga milli kl. 16 og 22 en um helgar verður opið milli 12 og 18. Á sama tíma, og einnig milli 16 og 22 á þriðjudögum, verður hægt að kaupa sér ís og ýmsa drykki, kaffi og vöfflur auk þess sem handverkssala verður á staðnum.  Einnig reka þau hjónin gistiþjónustu í grunnskólanum þar sem hægt er að taka á móti 19 manns í gistingu og eru bæði svefnpokapláss og uppbúin rúm í boði. Þar er um að ræða tvö þriggja manna herbergi og eitt fimm manna en að auki er gisting fyrir fleiri í sal. Hægt er að leigja allt húsið fyrir hópa og segja staðarhaldarar það til dæmis  tilvalið fyrir fjölskyldu- eða ættarmót, hesta- eða göngufólk sem vill njóta náttúrufegurðar Fljótanna.

 

Fleiri fréttir