Ósýnilega félagið með fyrirlestur á morgun
Gunnar Hersveinn rithöfundur og heimspekingur verður með fyrirlestur hjá Ósýnilega félaginu fimmtudaginn 5. febrúar kl. 16 í aðalbyggingu Hólaskóla - Háskólans á Hólum.
Yfirskrift lestursins er: Höfuðgildi Íslendinga fyrir og efir hrun
Gerir Gunnar í fyrirlestri sínum grein fyrir helstu gildum sem Íslendingar hafa iðkað, segir frá þeim tíðaranda sem einkenndi útrásina á 21. öld og þeim gildum sem nú virðast eiga upp á pallborðið. Einnig segir hann frá því hvaða aðferðir stofnanir, fyrirtæki og einstaklingar geti notað til að setja sér gildi til framtíðar og efnir til umræðna eftir lesturinn.