Skagfirðingar á leið til Danadrottningar

Íris Björk Marteinsdóttir sölu- og gæðastjóri Protis og Laufey Kristín Skúladóttir markaðs- og sölustjóri Fisk Seafood. Mynd: PF.
Íris Björk Marteinsdóttir sölu- og gæðastjóri Protis og Laufey Kristín Skúladóttir markaðs- og sölustjóri Fisk Seafood. Mynd: PF.

Skagfirska líftæknifyrirtækið Protis sem sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu á lífvirku fiskprótíni úr villtum íslenskum þorski, verður meðal fyrirtækja sem slæst í för með forseta Íslands í opinberri heimsókn hans til Danmerkur í næstu viku. Laufey Kristín Skúladóttir markaðs- og sölustjóri Fisk Seafood og Íris Björk Marteinsdóttir sölu- og gæðastjóri Protis verða fulltrúar fyrirtækisins.

Þetta mun verða fyrsta opinbera heimsókn forsætishjónanna erlendis frá því Guðni tók við embætti í sumar en með honum í för er opinber sendinefnd ásamt Guðlaugi Þór Þórðarsyni utanríkisráðherra. Fulltrúar nokkurra sjávarútvegsfyrirtækja munu einnig slást í hópinn og taka þátt í völdum viðburðum og þar verða þær Laufey og Íris viðstaddar. M.a. munu þær þiggja boð Margrétar Þórhildar Danadrottningar í Svarta demantinn á þriðjudag þar sem forseti Íslands færir henni Íslendingasögur í danskri þýðingu. Þá mun Laufey einnig hafa fengið boð í viðskipta-hádegisverð forsætisráðherra Dana.

Daginn eftir verður haldin málstofa um nýsköpun, sjálfbærni og matvælaframleiðslu í höfuðstöðvum Dansk industri og þar munu þær Íris og Laufey taka fullan þátt og kynna starfsemi fyrirtækisins og þátttöku þess í lífhagkerfinu. Ef af líkum lætur munu konungsborið fólk og fyrirmenni kíkja á hvað verið er að gera á Eyrinni og segir Íris allt eins eiga von á því að Friðrik prins verði leiddur til þeirra. Eftir málstofu verður móttaka um kvöldið til heiðurs Hennar hátign Margréti og hans konunglega tign Henrik prins, sem og öðrum úr konungsfjölskyldunni, í sendiráði Íslands í Danmörku í boði forseta og eiginkonu hans.

Fleiri fréttir