Skeiðfélagið Kjarval með æfingu
Hið nýstofnaða skeiðfélag í Skagafirði, Skeiðfélagið Kjarval, ætlar sér mikla hluti í framtíðinni á skeiðvellinum. Er nú blásið til sóknar og boðið til æfinga í skeiðbásunum nýju.
Æfingin verður á svæði Léttfeta, Flæðigerði, mánudagskvöldið 4. maí kl 20,00.
Félagar eru kvattir til að mæta og reyna sig og hestana í skeiðbásunum.