Skipið stórkostlegt

Hinn nýi togari FISK Seafood, Drangey SK-2, er á heimleið frá Tyrklandi þaðan sem skipið var smíðað en von er á því til Sauðárkróks í lok vikunnar. Heimförin hófst föstudaginn 4. ágúst en áætlaður siglingartími í Skagafjörðinn er um hálfur mánuður. Á laugardaginn verður skipinu formlega gefið nafn og í kjölfarið opið gestum til sýnis.
Drangey er 62,5 metra langt skip og 13,5 metra breitt með nýstárlegt skrokklag og stórt og áberandi perustefni sem á að tryggja betri siglingareiginleika, meiri stöðugleika og aukna hagkvæmi. Snorri Snorrason, skipstjóri, var mjög sáttur við skipið og ferðalagið heim er Feyki hafði samband við hann í gær. „Það hefur gengið svakalega vel. Við erum vestur af Írlandi í blíðskaparveri, sem betur fer ekki mikil sól bara milt og gott veður,“ segir hann en annað var uppi á teningnum í Miðjarðarhafinu. Þar segir Snorri hitann hafa mest farið í 37 gráður og hvergi hægt að vera nema þá helst í brúnni þar sem tvö kælibúnt eru staðsett. Þar undir var bærilegt að vera í skjóli fyrir sól og hita.
Í Feyki, sem kom út í morgun, er haft eftir Snorra að systurskipin Drangey og Björgúlfur EA séu glæsileg bæði tvö og algjörlega frábær í sjó. Áður en Drangey var sótt til Tyrklands sigldi Snorri með Björgúlfi og þess vegna hafi fátt komið á óvart á hinu nýja skipi.
Hann segir bjart framundan og segist ekki eiga nógu sterk lýsingarorð yfir það hvað hann hlakkar mikið til að byrja að vinna á skipinu.
Hér fyrir neðan má sjá hvar Drangey SK 2 siglir á brott frá Tyrklandi áleiðis til Íslands. Skipið var smíðað í Cemre skipasmíðastöðvarinnar og er myndbandið tekið af fésbókarsíðu þess.