Sóknaráætlun Norðurlands vestra stendur fyrir starfakynningu

Nær daglega heyrist í fréttum að erfiðlega gangi að fá iðnaðarmenn til starfa, að mikill skortur sé á iðn- og tæknimenntuðu fólki og þar fram eftir götunum. Ýmsar tilgátur hafa verið uppi um ástæðu þess að unga fólkið okkar leitar síður í nám í þessum greinum en í hefðbundið bóklegt nám, meðal annars er því kennt um að skólakerfið sé frekar sniðið að þörfum þeirra sem hyggja á bóklegt nám en hinna.

Nú stendur yfir undirbúningur á svokallaðri starfakynningu á vegum Sóknaráætlunar Norðurlands vestra sem á frumkvæðið að því að verkefninu var hleypt af stokkunum og ber kostnað af því. Það hefur verið unnið í samstarfi við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra sem leggur til húsnæði fyrir kynninguna sem og Árskóla, en það er Margrét Björk Arnardóttir, náms- og starfsráðgjafi í Árskóla sem hefur umsjón með verkefninu.Margrét Björk Arnardóttir, umsjónarmaður verkefnisins.

Starfakynningin er fólgin í því að leitað er til fyrirtækja og stofnana á Norðurlandi vestra á sviði iðn-, verk-, raun- og tæknigreina um að koma og kynna þau störf sem innt eru af hendi á þeirra vinnustöðum. Lögð er áhersla á að störfin verði kynnt af þeim starfsmönnum sem vinna þau og eru tilbúnir til að svara spurningum nemenda um starfið og jafnframt það nám sem að baki því liggur. Margrét leggur mikla áherslu á þetta atriði, að það séu þeir sem vinna störfin sem kynni þau og ef þess er kostur að gefa nemendum tækifæri á að prófa tæki og tól sem starfinu tilheyra.

Markmið starfakynningarinnar eru sett fram í fjórum liðum:

  • Að kynna störf í iðn-, verk-, tækni- og raungreinum fyrir nemendum á aldrinum 13-19 ára á Norðurlandi vestra með það að leiðarljósi að fleiri nemendur skili sér til náms og starfa í þessum greinum.
  • Að kynna menntunar- og atvinnumöguleika í þessum greinum.
  • Að gefa nemendum kost á að hitta og ræða við þá einstaklinga sem starfa í þessum greinum og afla sér þannig upplýsinga um námið og starfið.
  • Að gefa fyrirtækjum á Norðurlandi vestra sem starfa innan þessara greina tækifæri til að kynna sín störf og mikilvægi þeirra.

 Kynningin verður haldin þann 15. nóvember í Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki. Öllum nemendum í 8. – 10. bekk grunnskóla á Norðurlandi vestra verður boðið til kynningarinnar sem og nemendum Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. Hér er um að ræða u.þ.b. 600 nemendur auk starfsfólks skólanna og foreldra sem einnig eru boðnir velkomnir. Það er því ljóst að fyrirtæki á svæðinu ættu að hafa hag af því að taka þátt í kynningunni og leggja með því grunninn að því að fá fólk til starfa í framtíðinni. „Maður er svona aðeins að biðja fyrirtækin að velta fyrir sér hvernig starfsmenn þau vanti í framtíðinni, hvað verði mögulega í boði fyrir þessa krakka og hvað sé hægt að gera til að gera þessar greinar meira spennandi. Það er einlæg ósk okkar að fyrirtækin taki þátt í þessu og taki vel í þetta,“ segir Margrét sem hefur lengi gengið með hugmynd að kynningu sem þessari í maganum og fagnar því mjög þessu framtaki Sóknaráætlunar sem leggur til fjármagnið til að þetta megi verða að veruleika.  „Þetta er frábært tækifæri fyrir skólana til að kynnast því sem í boði er á svæðinu og til að nýta nærsamfélagið okkar,  við erum ekki að fara að sækja fullt af hátæknistörfum suður, heldur að sýna krökkunum hvað er hægt að gera hér. Vonandi verður þetta líka til þess að einhverjir uppgötvi hvað það er sem þá langar virkilega til að gera í framtíðinni og að krakkarnir fari fyrr að læra það sem hugurinn stendur til.”

Á næstunni verða haldnir kynningarfundir fyrir þá aðila í atvinnulífinu sem sýna verkefninu áhuga en þar verður verkefnið kynnt og fyrirspurnum svarað. Tímasetningar þeirra eru sem hér segir.

Blönduósi - 6. september kl. 12:00 á B&S Restaurant – Eyvindarstofu.

Hvammstanga - 6. september kl. 15:00 á Sjávarborg.

Sauðárkróki - 8. september kl. 12:00 á KK Restaurant - Kaffi Krók.

Skagaströnd - 8. september kl. 15:00 á Borginni.

Margrét hvetur alla þá aðila atvinnulífsins á svæðinu á sviði iðn- og verkgreina og raun- og tæknigreina sem áhuga hafa á að taka þátt í verkefninu að snúa sér til sín í gegnum netfangið margretba@gmail.com

Fleiri fréttir