Stærstu nöfnin í íslenskri tónlist á Reykjaströndinni 24. júní
Tónlistarhátíðin Drangey Music Festival fer fram á Reykjum á Reykjaströnd í Skagafirði laugardaginn 24. júní. Þetta verður í þriðja skiptið sem hátíðin fer fram og í þetta skiptið verður engu til sparað og rjóminn af vinsælustu tónlistarfólki landsins mun koma þar fram.
Fyrstan ber að nefna margverðlaunaðan Mugison sem kemur fram með hljómsveit, hljómsveitin Amabadama með stórstjörnuna Sölku Sól í fararbroddi mun stíga á stokk sem og frægasti tónlistarmaður landsins og nýbakaður sigurvegari íslensku tónlistarverðlaunanna Emmsé Gauti.
Þá snúa Jónas Sigurðsson og ritvélar framtíðarinnar aftur á hátíðina, en þau unnu hug og hjörtu gesta þar fyrir tveimur árum á eftirminnilegan hátt.
Heimafólk mun eiga sína verðugu fulltrúa en Contalgen Funeral mun kynna frábæra plötu sem þau gáfu út nýverið.
Allar aðstæður eru á Reykjum til að búa til góða skemmtun, veitingasala, tjaldstæði með snyrtingum og svo er bæði hægt að taka sér bað í Grettislaug og sigla með Drangeyjarferðum út í Drangey.
Miðasala á hátíðina er hafin á midi.is og um að gera að tryggja sér miða sem fyrst því í gildi er sérstakt forsölutilboð þar sem miðar eru töluvert ódýrari en þeir verða við hliðið. Þá er rétt að taka fram að fjöldi miða er takmarkaður.
/Fréttatilkynning